Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu er hafið í Sjónvarpi Símans Premium

Systkinin Hurðaskellir og Skjóða fara í ævintýralega fjársjóðsleit þar sem þau lenda í ýmsum skemmtilegum uppákomum. Nýr þáttur kemur inn í Sjónvarp Símans Premium alla morgna fram að jólum en þættirnir verða einnig sýndir í barnadagskrá í Sjónvarpi Símans klukkan 17.30 og aftur klukkan 19:00.
Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu mun ekki aðeins skemmta heldur einnig fræða um mismunandi öryggisreglur í umferðinni, á hjólum, snjóþotum, í strætó og fleira. Hurðaskellir og Skjóða þurfa nú að rifja upp allt sem að þau lærðu í umferðarskóla Grýlu. Við hvetjum foreldra og forráðamenn til að horfa með börnum sínum á þættina, ræða boðskapinn með þeim og eiga saman ævintýralega samverustund.

Auglýsing

læk

Instagram