Jólastjarnan 2021 er Fríður París Kristjánsdóttir!

Jólastjarnan 2021 er Fríður París Kristjánsdóttir!
Dómnefndin var í miklum erfiðleikum með að velja sigurvegarann þar sem keppnin var hörð í ár en þessi unga og ótrúlega efnilega söngkona heillaði dómnefndina upp úr skónum og hreppir þar með titilinn Jólastjarnan 2021. Allir þáttakendur stóðu sig með prýði og er ljóst að framtíðin er björt fyrir íslenskt tónlistarlíf.
Nú eru allir þættirnir um leitina að Jólastjörnunni komnir í Sjónvarp Símans Premium. Þar má sjá Fríði og aðra unga söngvara heilla dómnefndina með hæfileikum sínum. Öll munu þau koma fram á stóra sviðinu í Laugardagshöll 18.desember á Jólagestum Björgvins.
„Við sjáum svo alla þessa ungu söngsnillinga á stóra sviðinu í Laugardalshöllinni og heima í stofu í beinu streymi 18. desember! Viiið hlökkum svo tiiil,“ segir í tilkynningu.

Auglýsing

læk

Instagram