today-is-a-good-day

Kviss – Íslandsmótið í spurningakeppni

Kviss er stórskemmtilegur spurningaþáttur á Stöð 2 í umsjón uppistandarans og sjónvarpsmannsins Björns Braga Arnarssonar þar sem þekktir Íslendingar keppa fyrir hönd íþróttafélaganna sem þeir styðja.

Þótt liðin skiptist eftir íþróttafélögum er ekki um íþróttaþátt að ræða, heldur eru spurningar úr öllum áttum. Keppendur eru ekki íþróttafólk heldur nægir að þeir hafi alist upp í hverfi íþróttafélagsins eða hafi æft íþróttir með félaginu á yngri árum. Liðin sem vinna sínar viðureignir halda áfram leik þar til eitt lið stendur uppi sem sigurvegari og verður krýnt Íslandsmeistari í Kviss spurningakeppni 2020.

Þátttakendur í fyrsta þætti eru: Fyrir hönd Breiðabliks keppa þau Eva Rúsa og Herra hnetursmjör og fyrir hönd FH er það þau Jón Jónsson og Björg Magnúsdóttir.

Auglýsing

læk

Instagram