Leggur til opnun skemmtistaða, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum

Á upplýsingafundi almannavarna í dag kom meðal annars fram að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir mun leggja það til við heilbrigðisráðherra að heimilt verði að opna aftur krár og skemmtistaði þann 28. september.

Krár og skemmtistaðir hafa verið lokaðir frá 18. september eftir mikla aukningu kórónuveirusmita, sem má meðal annars rekja til skemmtistaða.

„Sóttvarnarlæknir mun í dag senda ráðherra tillögu um sóttvarnaraðgerðir sem þurfa að koma til framkvæmda eftir 27. september. Ef að ekkert stórt gerist næstu daga eru ekki lagðar til miklar breytingar að þessu sinni, nema að hann mun leggja til að krár og skemmtistaðir á höfuðborgarsvæðinu verði opnaðir 28. september,“ sagði Alma Möller landlæknir á fundinum.

Útfæra þarf nánar ákveðin skilyrði sem staðirnir þurfa að uppfylla áður en að opnuninni verður.

„Það verða gerðar ákveðar kröfur um hámarksfjölda gesta og ýmsan aðbúnað á þessum stöðum og þetta á eftir að útfæra og væntanlega verður haft samráð um það,“ bætti Alma við.

Auglýsing

læk

Instagram