today-is-a-good-day

Bindur vonir við að hægt sé að aflétta hraðar en áætlað var

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna nú í morgun að hægt verði að aflétta öllum sóttvarnatakmörkunum hér á landi um miðjan mars, en hann bindur þó vonir við að hægt sé að gera það fyrr.

Álagið á Landspítala hefur minnkað til muna og var neyðarstigi spítalans aflétt í gær.

„Ég tel að góðar von­ir séu til þess að við mun­um ná í mark í þess­ari bar­áttu, í þessu lang­hlaupi um síðari hluta mars og jafn­vel fyrr ef ekk­ert óvænt kem­ur upp á,“ sagði Þórólf­ur á fundinum og skoraði á fólk að standa sam­an þessa síðustu metra í þessu maraþon­hlaupi.

Auglýsing

læk

Instagram