today-is-a-good-day

Leikarinn Orlando Bloom á Íslandi

Leikarinn Orlando Bloom er staddur hér á landi. Hann sást á röltinu í miðbæ Reykjavíkur í gær með vinum sínum og borðaði hópurinn meðal annars á Reykjavík Meat.

„Já það er staðfest, hann var hjá okkur í dag að borða. Hann var þar með erlendum vinum sínum og fékk sér gott nautakjöt. Hann var alveg dásamlegum viðskiptavinur, mjög gaman af honum og bara virkilega hress,“ segir þjónn á Reykjavík Meat í samtali við Mannlíf

Bloom er þekktastur fyrir hlutverk sín í myndum á borð við Lord Of The Rings og Pirates Of The Carribbean.

Auglýsing

læk

Instagram