Leikkonan Shannen Doherty með krabbamein á fjórða stigi

Bandaríska leikkonan Shannen Doherty, sem er hvað þekktust úr þáttunum Beverly Hills 90210, hefur nú greint frá fjórða stigs krabbameini sem hún glímir við. Hún greindist fyrst með krabbamein fyrir um 5 árum en sigraðist á því og var laus við meinið árið 2017.

Krabbameinið tók sig upp aftur fyrir ári síðan og er núna komið á fjórða stig.

Doherty sagði í viðtali við ABC News að hún ætti erfitt með að meðtaka þessar fréttir.

„Ég hugsa að ég sé ekki ennþá búin að meðtaka þetta almennilega, segir hún. „Það er erfitt að kyngja þessu, á svo margan hátt. Það koma dagar þar sem að ég hugsa, ‘Afhverju ég?’ En svo hugsa ég, ‘Afhverju ekki ég?’ Á einhver þetta skilið? Ekkert af okkur á þetta skilið. Ég myndi segja að mín fyrstu viðbrögð hafi verið, hvernig á ég að segja mömmu og manninum mínum þetta?.“ sagði hún í viðtalinu.

Auglýsing

læk

Instagram