Lögreglufólk á Suðurnesjum stígur trylltan dans

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum birti myndband á Facebook þar sem lögreglufólk sést stíga trylltan dans í takt við lagið Blinding Lights með tónlistarmanninum Weekend.

Undanfarna daga hefur heilbrigðisstarfsfólk og annað fólk úr framlínunni, út um allan heim, póstað dans-myndböndum á samfélagsmiðlum og hefur uppátækið vakið mikla athygli.

„Við verðum að taka þátt í þessu með öðrum viðbraðgsaðilum í framlínunni. Okkar framlag var sko ekki tekið í einu skoti heldur kostaði þetta blóð, svita og tár,“ segi í texta sem fylgir myndbandinu.

Auglýsing

læk

Instagram