Magnús Kjartan með Brekkusönginn á Þjóðhátíð í Eyjum

Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins frá Selfossi, mun stýra Brekkusöngnum í Herjólfsdal sunnudagskvöldið 1.ágúst. 
Magnús hefur um árabil verið einstaklega eftirsóttur trúbador samhliða því að spila með hljómsveit sinni vítt og breitt um landið við hin ýmsu tilefni og meðal annars komið fram á Þjóðhátíð óslitið síðan 2016.
Boðið verður upp á lifandi streymi í samvinnu við Senu live frá Brekkusöngnum í fyrsta skipti og geta landsmenn því upplifað Brekkusönginn heima í stofu í gegnum netið eða myndlykla Vodafone og Símans: https://senalive.is/vidburdir/brekkusongur/
Dagskráin á Þjóðhátíð:
Bríet – Aron Can – FM95Blö – DJ Muscleboy – Emmsjé Gauti – Aldamóta tónleikarnir – Cell 7 – Herra Hnetusmjör – Jóhanna Guðrún – Bandmenn – Stuðlabandið
Í lok vikunnar verða tilkynntir enn fleiri listamenn. Það eru Tuborg, Pepsi Max, Red Bull og FM957 sem færa landsmönnum Þjóðhátíð í Eyjum.
 
Miðasala er í fullum gangi á https://dalurinn.is/ – og nýjar ferðir eru nýkomnar í sölu í gamla Herjólf á föstudegi út til Eyja og heim á mánudeginum – sem eru vinsælustu ferðirnir og því gott fyrir fólk að tryggja sér þessar aukaferðir sem fyrst.
Auglýsing

læk

Instagram