Ný Ferðagjöf stjórnvalda

Fyrirhugað er að gefa út nýja Ferðagjöf stjórnvalda í sumar og verður fjárhæðin sú sama og árið 2020, þ.e. 5.000 kr. fyrir einstaklinga fædda 2003 eða fyrr. Enn verður hægt að nota ónýttar Ferðagjafir, útgefnar árið 2020, til 31. maí 2021, en eftir það falla þær niður við endurnýjun Ferðagjafar 2021. Þetta kemur fram á vef stjórnaráðsins

Ferðagjöfin er hluti af nýjum aðgerðapakka stjórnvalda til að byggja enn frekar undir íslenska ferðaþjónustu, en fyrirtæki í ferðaþjónustu eru meirihluti þeirra sem nýtt hafa efnahagsúrræði stjórnvalda undanfarið ár, enda hefur greinin orðið fyrir búsifjum umfram aðrar greinar.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra mun leggja fram frumvarp um endurnýjun Ferðagjafar með gildistíma frá 1. júní 2021 til og með 31. ágúst 2021.

„Markmið ferðagjafar er að hvetja fólk til að ferðast vítt og breitt um landið, ásamt því að hvetja fyrirtæki innan ferðaþjónustunnar til þátttöku í verkefninu, með því að bjóða upp á fjölbreytt tilboð og tækifæri, líkt og síðasta sumar en átakið mæltist vel fyrir og hafði jákvæð áhrif á fólk og fyrirtæki,“ segir Þórdís Kolbrún.

Auglýsing

læk

Instagram