Ökuskírteini í rafrænu formi væntanleg í lok júní

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra greinir frá því á Instagram í dag að Íslendingar geti haft ökuskírteini sín á rafrænu formi í símanum sínum í lok júní, ef allt gengur upp.

„Það eru núna í gangi síðustu prófanirnar á stafrænu ökuskírteini og það verður aðgengilegt núna í lok júní inni á Ísland.is,“ segir Áslaug.

Ríkislögreglustjóri og Stafrænt Ísland, sem er verkefnastofa á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytisins, hefur unnið í þróun verkefnisins undanfarna mánuði.

Auglýsing

læk

Instagram