Auglýsing

REYKJAVIK EDITION – NÝR OG SPENNANDI STAÐUR TIL AÐ NJÓTA MATARGERÐARLISTAR Í HÖFUÐBORG ÍSLANDS

Reykjavik EDITION, sem nú er opið til forskoðunar, er glæsileg viðbót í höfuðborg Íslands með einstökum veitingastöðum og börum. Veitingasvæðin eru t.d. opni barinn í anddyrinu, sérréttaveitingastaður og kaffihús á Tides, hinn einstaki kokteilbar Tölt, næturklúbbur og þakbar sem verður opnaður 2022. Eitt af því einstaka við hótelið sem ekki hefur sést áður á Íslandi er að á Reykjavík EDITION eru staðir fyrir öll tækifæri – allir undir sama þaki.

Gunnar Karl Gíslason sem er kokkurinn á bak við Dill, hinn vinsæla veitingastað, og handhafi New Nordic Michelin-stjörnunnar er við stjórnvölinn á Tides, sérstökum veitingastað Reykjavík EDITION sem skartar verönd og sérinngangi frá höfninni.

„Ég er mjög spenntur að vera hluti af þessari nýju hótelopnun sem hefur verið beðið með svo mikilli eftirvæntingu í borginni,“ segir Gunnar Karl Gíslason.

„Ég vona svo sannarlega að þetta verði tímamót í matargerðarlist í Reykjavík og ég er fullur eftirvæntingar fyrir hönd íslenskrar nútímamatargerðar sem fær að sanna sig á alþjóðavettvangi.“

TIDES-VEITINGASTAÐUR OG -KAFFIHÚS Tides er aðalveitingastaður hótelsins sem fyrsti Michelin-stjörnuhafi Íslendinga, Gunnar Karl Gíslason, stýrir. Tides býður upp á það allra besta af náttúrulegu hráefni landsins. Gunnar Karl býður upp á nútímalega íslenska matargerð sem ber keim af hefðbundnum eldunaraðferðum með áherslu á árstíðabundnar íslenskar afurðir og hágæða alþjóðlegt hráefni sem er að mestu eldað yfir opnum eldi. Á veitingastaðnum er allt kapp lagt á að bjóða upp á ferskar og sjálfbærar innlendar vörur úr næsta nágrenni. Íburðarmiklar og fágaðar innréttingar styðja við matseðlinn en áhersla er lögð á sjávarfang sem og grillað kjöt og grænmetisrétti en flestir réttir eru eldaðir yfir opnum eldi.

Á morgunverðarborðinu er m.a. íslensk jógúrt og sætabrauð og boðið er upp á heita rétti sem hægt er að panta af matseðli. Fyrir þá sem koma til kvöldverðar tryggir Gunnar Karl Gíslason kokkur að íslensk nútímamatargerð og menning einkenni allt sem hann framleiðir í eldhúsinu, parað saman við tilkomumikinn vínlista þar sem er að finna vín frá öllum heimshornum. Nokkrir helstu réttir á matseðlinum eru: Grillaður sólkoli, spergilkál og skessujurt Bakaður þorskur, grillaðar kartöflur, blandaðar jurtir og brúnað smjör Þunnskorið angus-nautakjöt með GK BBQ-gljáa, stöppuðum kartöflum, grilluðum portobello-sveppum og salati Brúnaður og hægeldaður lambabógur, súrsaður laukur, mynta og epli.

Afgreiðsluborðið á Tides er sannkallað augnakonfekt fyrir þá sem vilja fylgjast með því allra besta og sjá rétti framreidda á hinu einstaka kokkavinnuborði. Þrjú kvöld í viku hafa gestir tækifæri til að sjá yfir í opna eldhúsið sem býður upp á átta rétta fastan matseðil með vínpörun fyrir allt að 10 manns.

EDITION Hotels er óvænt og hressandi samsafn einstaklingsmiðaðra, sérsniðinna, einstakra hótela sem endurskilgreina reglur hefðbundins lúxuss. Sérhvert EDITION-hótel býður upp á gæðaúrval af veitingastöðum og afþreyingu, þjónustu og þægindum.

„Allt undir einu þaki“ og endurspeglar það besta í menningarumhverfi og félagslegu umhverfi hvar sem það er staðsett og á hvaða tíma sem er. EDITION er hugarfóstur Ians Schragers í samstarfi við Marriott International og sameinar bæði hina persónulegu og nánu upplifun sem hann er þekktur fyrir og hin alþjóðlegu tengsl, rekstrarþekkingu og umfang Marriott.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing