Sænska ríkisútvarpið fjallar um A Song Called Hate heimildamyndina – Frumsýnd í Gautaborg í dag!

Í fréttafyrirsögn sænska ríkisútvarpsins í dag segir „De Vågade ta ställing i Eurovision-bråket“ sem gæti útlagst „þau þorðu að taka afstöðu í Eurovision deilunni“. Í nær heilsíðuumfjöllun Dagens Nyheter segir að myndin dragi fram mannlegu hliðina á pólitískum átökum og aktífisma listamanna.
 

Tilefnið er frumsýning heimildamyndarinnar A Song Called Hate í dag á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg, sem er stærsta hátíð sinnar tegundar á Norðurlöndunum. Myndin er tilnefnd til Dragon verðlaunanna sem besta Norræna heimildamyndin árið 2020.

A Song Called Hate var frumsýnd á Íslandi á RIFF sl. haust og heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Varsjá þar sem hún var tilnefnd til „Free Spirit“ verðlaunanna. Um þessar mundir er myndin í sýningu á Docpoint heimildamyndahátíðinni í Finnlandi og í Eistlandi. Myndin verður sýnd síðar í febrúar á See You Sound kvikmyndahátíðinni á Ítalíu og á Human International Documentary Film Festival í Osló í byrjun mars. Vegna heimsfaraldursins fara allar þessar hátíðir fram á netinu.

Heimildamyndin er um aðdraganda Eurovision gjörnings Hatarahópsins og ferð þeirra til Tel Aviv árið 2019 þar sem þau komu fram í Eurovison fyrir Íslands hönd.

Hatarahópurinn hlaut heimsathygli fyrir ádeilugjörning sinn en þau höfðu áður vakið athygli á Íslandi fyrir jaðarlist sína og yfirlýsingar um að markmið sitt að knésetja kapítalismann.

Hatarahópurinn sætti harðri gagnrýni fyrir að virða ekki sniðgöngu og þótti sumum sem þeir hefðu orðið tækifærismennsku að bráð. Hatarahópurinn sagði á móti að þeir vildu taka dagskrárvaldið í sínar hendur með listgjörningnum og nýta sér sviðið í einum af stærstu sjónvarpsþáttum heims. Þannig vildu þau benda á þversögnina sem fólgin er í að halda Eurovision viðburðinn á meðan mannréttabrot eru framin daglega í boði Ísraelsstjórnar í Palestínu.

A Song Called Hate spyr spurninga um tilgang listarinnar í þessu samhengi. Áhorfendur sjá ferðalagið til Ísrael og Palestínu í gegnum augu Matthíasar og Klemensar sem eru söngvarar hópsins og fylgja þeim eftir þegar þeir þurfa að horfast í augu við harðan veruleikann sem blasir við Palestínubúum daglega. Getur ópólitísk söngvakeppni í raun verið ópólitísk við þessar aðstæður? Skiptir góður ásetningur þeirra um að vekja athygli á þessu máli? Og hvaða aðstæður hafa þeir komið sér og samverkafólki sínu í Palestínu út í? Ráða þeir við atburðarásina eða tekur gjörningurinn völdin?

A Song Called Hate er frumraun Önnu Hildar Hildibrandsdóttur sem leikstjóra en hún framleiðir jafnframt myndina í gegnum fyrirtæki sitt Tattarrattat. Meðeigendur hennar Iain Forsyth og Jane Pollard sem leikstýrðu meðal annars 20.000 Days on Earth með Nick Cave eru yfirframleiðendur myndarinnar ásamt Skarphéðni Guðmundssyni hjá RÚV.

Baldvin Vernharðsson, sem hefur leikstýrt og filmað mikið af myndböndum Hatara, var kvikmyndatökustjóri og aðgangur að hópnum var því einstakur. Myndin varpar þannig ljósi á við flókið og erfitt viðfangsefni listamannanna bæði á sviði og í vegferðinni sem þau voru á samhliða Eurovision keppninni.

 RÚV, sem eru meðframleiðendur á myndinni, taka hana til sýningar í þremur þáttum í apríl en myndin verður sýnd í kvikmyndahúsum víða um land í aðdraganda þess.

 Kynningarstikla um myndina

Auglýsing

læk

Instagram