Salmann Tamimi er látinn

Salmann Tamimi lést í gær, 65 ára að aldri. Hann gegndi stöðu forstöðumanns Félags múslima á Íslandi.

Félag múslima greinir frá andláti hans á Facebook síðu félagsins:

„Í gærkvöldi lést forstöðumaður Félags múslima á Íslandi, Salmann Tamimi. Þessa manns verður sárt saknað. Við viljum minna fólk á að bera virðingu fyrir aðstæðum sem fjölskylda hans er í og fara ekki heim til hans og hringja i fjölskyldumeðlimi stanslaust. Það eina sem við getum gert núna er að biðja Allah að blessa sál hans og inshallah hann verður háttsettur í paradís.“

Salmann lætur eftir sig eiginkonu, fimm börn og ellefu barnabörn.

Auglýsing

læk

Instagram