Það er komin Helgi – Í kvöld klukkan 20:00!

Helgi sigraði hug og hjörtu landsmanna í þáttunum Heima með Helga í vetur en þar tók hann á móti gestum í kvöldvökustemmningu í beinni útsendingu heim til landsmanna.
Þátturinn sem hefst í kvöld verður sambærilegur fyrri útsendingum Helga hjá Sjónvarpi Símans en þó með ögn breyttu sniði. Nú verða þættirnir ekki heima hjá Helga heldur sendir út frá Hlégarði í Mosfellsbæ. Helgi tekur sem fyrr á mót einvala liði gesta en gestalisti Helga verður hulinn miklum leyndarhjúp og kemur ekki í ljós fyrr en í útsendingunni hverjir eru gestir kvöldsins hverju sinni.
Í nýju seríunni verður gefið meira rými fyrir kerskni og gamanmál.
,,Okkur langaði aðeins að víkka rými samtalsins og gefur okkur færi á smá sprelli en auðvitað er tónlistin, sem fyrr, allt um liggjandi í þessu hjá okkur. Sú formúla fór vel í landsmenn og engin ástæða að breyta því,“ segir Helgi sem nú getur orðið bætt titlinum þáttarstjórnandi við röð titla á borð við söngvari, leikari og framleiðandi svo eitthvað sé upp talið.
Þættirnir verða sex núna í haust og hefja göngu sína eins og fram kom hér að ofan á í kvöld, laugardagskvöld kl 20:00 í Sjónvarpi Símans.

Auglýsing

læk

Instagram