The Block í Sjónvarpi Símans Premium

Framkvæmdaglaðir fagurkerar athugið! Ný þáttaröð af vinsælu áströlsku raunveruleikaþáttunum The Block er hafin í Sjónvarpi Símans Premium.

Fimm tveggja manna lið fá tækifæri til að breyta niðurníddum íbúðum í glæsileg heimili í spennandi keppni. Liðin fá eina viku fyrir hvert rými íbúðarinnar og eru í stanslausu kapphlaupi við klukkuna þegar þau leggja allt í sölurnar til að klára verkefni vikunnar. Það reynir ekki bara á hönnunarhæfileikana heldur einnig á sambönd kependanna og dramatíkin er mikil.

Þættirnir hafa verið með vinsælustu þáttum Ástralíu síðustu ár en Ástralir eru þekktir fyrir gott raunveruleikasjónvarp. Margir Íslendingar muna eflaust eftir þegar þættirnir voru fyrst sýndir á Stöð 2 árið 2004 og í kjölfarið var gerð íslenska þáttaröðin Hæðin sem sýnd var árið 2008.

Fyrstu þættirnir eru komnir í Sjónvarp Símans Premium og það bætist nýr þáttur við daglega.

Auglýsing

læk

Instagram