„Þetta er persónulegasta og einlægasta lag sem ég hef samið“

KLARA ELIAS eða Klara Ósk Elíasdóttir var að gefa út lagið „Champagne.”

Um er að ræða hennar aðra smáskífu en sú fyrsta, sem ber heitið „Paralyzed” , kom út í síðasta mánuði. Lögin eru bæði af væntanlegri plötu Klöru sem hún stefnir á að gefa úr á næsta ári.

„Þetta er uppáhalds lagið mitt af plötunni. Lagið var samið tveimur dögum eftir erfiðustu sambandsslit sem ég hef farið í gegnum. Ég áttaði mig á því í miðju partý, með glas á lofti og tárin í augunum að skála við vini mína að þetta væri búið og ég væri loksins tilbúin til að hætta að pína mig í að reyna láta eitthvað ónýtt virka. Þetta er persónulegasta og einlægasta lag sem ég hef samið og er svo stolt og glöð að geta gefið það frá mér og lokað þessum kafla á þennan fallega hátt”- segir Klara í samtali við albumm.is

Auglýsing

læk

Instagram