Tíu starfsmenn Pizzunnar í sóttkví

Starfsmaður veitingastaðarins Pizzunnar í Kópavogi greindist smitaður af Covid-19 nú um helgina. Umræddur starfsmaður var á vaktinni á laugardaginn og hafa allir starfsmenn veitingastaðarins verið sendir í sóttkví. Framkvæmdarstjóri Pizzunnar staðfestir þetta í samtali við fréttastofu vísis
Að sögn Hákons var starfsmaðurinn við störf sem sendill á laugardagskvöldið en hann hafi farið í fáar sendingar, undir 10 talsins. Hann segir einnig að staðurinn í Núpalind verði mannaður með starfsfólki af öðrum stöðum svo ekki þurfi að loka honum á meðan á sóttkvínni stendur.
Auglýsing

læk

Instagram