today-is-a-good-day

Tveir miðahafar hljóta rúmlega 27 milljónir hvor

Tveir heppnir miðahafar voru með 1. vinning í Lottó í gærkvöldi og skipta því vinningsupphæðinni á milli sín. Hvor vinningshafi fær rúmlega 27,2 milljónir en annar þeirra keypti miðann í N1, Vesturbraut 1 á Höfn í Hornafirði og hinn miðinn var keyptur í Jolla, Helluhrauni 1 í Hafnarfirði. Það var svo áskrifandi sem var einn með bónusvinninginn og fær hann rúmlega 819 þúsund krónur í sinn hlut.

Þrettán miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir í Esjuskálanum, Vallargrund 3 í Reykjavík, Olís, Langatanga 1 í Mosfellsbæ, N1, Reykjavíkurvegi 54 í Hafnarfirði, Öldunni, Kolbeinsgötu 35 á Vopnafirði, Happahúsinu, Kringlunni í Reykjavík, Olís, Hafnarbraut 45 á Höfn í Hornafirði, tveir í Lottó appinu, einn á heimasíðunni lotto.is og fjórir miðar eru í áskrift.

Auglýsing

læk

Instagram