Tveir skiptu hinum al-íslenska þriðja vinningi á milli sín

Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út að þessu sinni í Víkingalottó, en tveir skiptu hinum al-íslenska 3. vinningi á milli sín og fær hvor þeirra rúmlega 2,8 milljónir króna. Annar vinningshafanna er í áskrift en hinn miðinn var keyptur í Lottó appinu.

Tveir miðahafar voru með fjórar réttar Jókertölur í réttri röð og hlýtur hvor þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn var keyptur á lotto.is en hinn í Kvikk, Skagabraut 43 á Akranesi

Auglýsing

læk

Instagram