Valitor varar við kortasvikum

Undanfarnar vikur hefur fólk verið að fá sms skilaboð eða tölvupósta frá óprúttnum aðilum, í nafni hérlendra fyrirtækja, þar sem korthafar eru beðnir um að senda kortaupplýsingar vegna væntanlegrar endurgreiðslu inn á greiðslukort.

Í tilkynningu frá Valitor er fólk beðið um að staldra við þegar það fær slík skilaboð, hvort sem er í pósti eða með sms.

„Það er mikilvægt að korthafar staldri við þegar þeir fá slík skilaboð, hvort sem er í pósti eða með sms. Í sumum tilvikum eru svikararnir að nýta sér staðfestingarkóda í gegnum Vottun Visa með sms. Í kódanum kemur fram hvaða færslu er verið að biðja um staðfestingu á, söluaðili, upphæð og gjaldmiðill. Ef færsla er staðfest hjá söluaðila með slíkum kóda þá er hún óafturkræf. Því miður eru dæmi um að korthafar hafið tapað háum upphæðum vegna svika af þessum toga.“

„Valitor brýnir fyrir korthöfum að smella ekki á hlekkinn sem fylgir skilaboðunum og gefa ekki undir neinum kringumstæðum upp kortaupplýsingar. Hafi fólk brugðist við slíkum skilaboðum eða eru í minnsta vafa um réttmæti upplýsinga sem þeir fá er brýnt að hafa samband strax við viðskiptabanka sinn eða þjónustuver Valitor utan opnunartíma bankans,“ segir í tilkynningunni. 

Þar er einnig bent á það að almenna reglan sé sú að fyrirtæki og stofnanir biðja yfirleitt ekki um kortaupplýsingar einstaklinga, hvorki í tölvupósti, í gegnum SMS eða með símtali.

Auglýsing

læk

Instagram