Yfir 20 millj­ón­ir söfnuðust í þættinum

Lokaþáttur af „Það er komin Helgi“ var sýndur í Sjónvarpi Símans í gærkvöldi og söfnuðust yfir 20 milljónir í þættinum, fyrir Mæðrastyrksnefnd.

Helgi Björnsson segir í samtali við mbl.is að hann hafi fundið fyrir mikilli gjafmildi og jákvæðni hjá þjóðinni í gær.

„Þetta er búið að vera að mestu leyti mjög skrítið tíma­bil, eins og all­ir hafa upp­lifað,“ seg­ir Helgi. „Við höf­um verið lukk­unn­ar pamfíl­ar að hafa fengið að vinna í þessu ástandi, sem er ekki hægt að segja um flesta af koll­eg­um okk­ar.“

Mikið húllumhæ var í þættinum í gær en þátturinn var mun lengri en áður og Helgi fékk fleiri gesti í heim­sókn.

Auglýsing

læk

Instagram