Myndskeið af erlendum manni sem gengur berserksgang á íslenskri bensínstöð fer nú sem eldur í sinu um samfélagsmiðla. Þar sést maður í æðiskasti ausa fúkyrðum yfir íslenskan starfsmann en um er að ræða einstakling í gulu vinnuvesti sem styður sig við hækju og er í rauðum spreyjuðum Timberland skóm. Þá hendir hann einnig vörum í gólfið og hótar að drepa starfsmann bensínstöðvarinnar. Starfsmaðurinn heldur ró sinni þó svo það sjáist, án nokkurs vafa, að um er að ræða einstakling í mjög vafasömu ástandi.
Það sem hefur vakið athygli netverja er að umræddur maður gengur út af bensínstöðinni og sest svo upp í rúmlega fjórtán milljóna króna Mercedes Benz-bifreið. Á samfélagsmiðlum má sjá númer ökutækisins.

Þegar númerinu er hins vegar flett upp í ökutækjaskráningu þá vandast málin. Búið er að greiða sérstaklega fyrir að fela eignarhaldið á bifreiðinni. Með ítarlegri rannsókn kemur hins vegar í ljós að eigandinn er heimilislaus, óskráður í hús, og er samkvæmt heimildum Nútímans, 31 árs gamall karlmaður sem heitir Salómon en eftirnafn hans er Ndure.

En það er ekki það eina sem vekur athygli. Umræddur einstaklingur skuldar ekki eina krónu í umræddum bíl – engin veðbönd hvíla að minnsta kosti á ökutækinu. Það þýðir að einstaklingurinn sem sést á myndskeiðinu á þennan 14 milljóna króna Benz-jeppa skuldlaust. Þessar upplýsingar eru fengnar úr bakendakerfi Samgöngustofu sem almennir borgarar hafa ekki aðgang að.
Af hverju búið er að greiða fyrir nafnleynd og af hverju umræddur einstaklingur á slíka bifreið skuldlaust er rannsóknarefni út af fyrir sig.