Rússneski YouTuberinn Maria Solko hefur vakið mikla athygli með myndbandi þar sem hún sýnir hvernig fólk býr í Yakutsk, kaldasta bæ heims.
Myndbandið hefur fengið yfir 7,6 milljónir áhorfa á skömmum tíma og veitir innsýn í daglegt líf í bæ þar sem meðalhitinn er um –50 gráður á veturna.
Yakutsk er höfuðborg Sakha lýðveldisins í Síberíu og þar búa yfir 300 þúsund manns, þrátt fyrir einhver hörðustu skilyrði heims.
Lægsti hiti sem mælst hefur þar er –64 gráður.
Í myndbandinu fer Solko yfir hvað þarf til að lifa af við slík skilyrði og hvernig fólkið í bænum fer að því að draga fram lífið á einhverju erfiðasta svæði á jörðinni.