Einar Kárason varar við ESB-aðild

Rithöfundurinn Einar Kárason skrifar færslu á Facebook um hvernig fer fyrir Íslendingum er þeir missa forræði eigin mála til útlanda. Einar rifjar upp að konungssamband við Noreg á 13. öld hafi litlu breytt um sjálfstæði landsins.

Gamli sáttmáli við Hákon Noregskonung var gerður eftir illvígan innanlandsófrið sem kenndur er við Sturlungaöld. Tvö hundruð árum eftir Gamla sáttmála breyttust aftur aðstæður á Íslandi mjög til hins verra. Siðbótin í nafni Marteins Lúthers hafði þær afleiðingar að konungsvald styrktist er kaþólska kirkjan laut í lægra haldi fyrir veraldlegu valdi.

Auglýsing

„Misstum sjálfstæði og eignir“

Einar skrifar að „við á Íslandi misstum sjálfstæði, fullveldi og allt sem kalla má reisn: Danakonungur lét greipar sópa um allt sem var einhvers virði á Íslandi, landeignir, hlunnindi og gull og gersemar í bland – allt sem hafði verið í eigu okkar innlendu kirkju. Skip voru hlaðin með þessu, og landsmenn stóðu uppi sem eignalausir skattgreiðendur þeirra í Kaupmannahöfn.” Lokaorð Einars Kárasonar rithöfundar eru: „Þetta þarf fólk að hugsa út í og vita.“

Umræða og viðbrögð

Töluverðar umræður sköpuðust á vegg Einars eftir færsluna. Hannes Hólmsteinn Gissurarson tók undir með rithöfundinum og spurði nokkurra spurninga: „Bætum við lífskjör okkar með því að þurfa að greiða miklu meira inn í báknið en við fáum út úr því? Bætum við lífskjör okkar með því að færa lagasetningarvaldið alfarið úr landi? Það er ljóst, að ESB myndi til dæmis banna hvalveiðar á Íslandsmiðum. Nú skipta þær ekki miklu máli efnahagslega, en hvað gerðist, ef ESB bannaði þorskveiðar? Umhverfisöfgamenn ráða miklu í Brüssel. Eigum við að selja okkur undir þeirra vald? Nú er talað um nauðsynina á Evrópusambandsher. Myndi Ísland verða undanskilið, væri það í ESB? Yrði ekki að taka upp herskyldu?“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing