Fegursta kona Bandaríkjanna afsalar sér titlinum

Noelia Voight var krýnd fegursta kona Bandaríkjanna í september en hún hefur nú afsalað sér titlinum eftirsótta og segir ástæðuna vera andlega heilsu sína og álagið sem fylgir titlinum.

Í færslu á Instagram sagði hún að aldrei ætti að fórna andlegri eða líkamlegri heilsu fyrir neitt því heilsan sé það dýrmætasta sem við eigum.

Skipuleggjendur keppninnar hafa stutt við bakið á henni og segja að arftaki hennar verði krýndur fljótlega.

Voight segir að þessir níu mánuðir sem hún var Ungrfrú Bandaríkin hafi gefið henni mikið og að hún hlakki til að hefja næsta kafla í lífi sínu.

Hún segir einnig að hún vonist til að halda áfram að veita fólki innblástur og verði ævinlega þakklát fyrir reynslu sína úr keppninni.

Auglýsing

læk

Instagram