Menn grunaðir um hópnauðgun á Akureyri lausir úr haldi

Þrír menn sem grunaðir eru um hópnauðgun gegn konu á þrítugsaldri á hóteli á Akureyri hafa verið látnir lausir úr haldi lögreglu. Rannsókn málsins heldur þó áfram hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.

DV greindi fyrst frá málinu á sunnudag.

Auglýsing

Ekki krafist gæsluvarðhalds

Samkvæmt heimildum DV var ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum og hafa þeir því verið látnir lausir á meðan rannsókn stendur yfir. Samkvæmt nýjum heimildum miðilsins voru þeir látnir lausir úr haldi í gærkvöld.

Lögreglan hefur ekki veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu, annað en að nauðgunarmál sé til rannsóknar hjá embættinu.

Brotaþoli hlaut mikla áverka

Samkvæmt heimildum DV á brotaþoli að hafa hlotið mikla áverka eftir árásina. Það staðfesta heimildir Nútímans, sem segja að líkami hennar sé „næstum einn marblettur frá lærum upp að öxlum.“

Hún er sögð hafa þurft að þola margra klukkustunda ofbeldi af hendi hinna grunuðu.

Þá er einnig talið að mennirnir hafi tekið upp myndband af ofbeldinu og að það hafi farið í einhverja dreifingu á samfélagsmiðlum.

Áhrifavaldurinn sem handtekinn var í tengslum við meinta, sérlega grófa hópnauðgun á Akureyri er Kleini – Fyrrum kærasta stígur fram og segir frá ofbeldi

Áhrifavaldur nefndur í tengslum við málið

Það hefur meðal annars komið fram að einn hinna handteknu sé áhrifavaldurinn Kristján Einar Sigurbjörnsson, sem gengur undir nafninu Kleini á samfélagsmiðlum. Fjallað hefur verið um það með vísan í færslu fyrrverandi unnustu hans á Facebook.

Málið er áfram til rannsóknar hjá lögreglu. Engar frekari upplýsingar hafa verið gefnar út á þessu stigi.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing