OnlyFans fyrirsætur í herferð gegn loftslagsvá

Fyrirsætur sem afklæðast gegn borgun á OnlyFans samfélagsmiðlinum eru nýjasta útspilið í umræðunni um manngert veðurfar og meinta loftslagsvá. Á meðan fyrirsæturnar afklæðast útskýra þær tælandi röddu kosti endurnýjanlegrar orku umfram jarðefnaeldsneyti eins og bensín og dísel.

Ráðgerð er þáttaröð á netinu með fáklæddum fyrirsætum með loftslagsboðskap um heita jörð og gróðurhúsaáhrif. Framleiðandinn er Adam McKay sem á að baki bíómyndir eins og The Big Short og Don’t Look Up. Með í teyminu eru leikkonan Megan Prescott, kvikmyndagerðamaðurinn Bree Essrig og Jessica Riches sem segist sérfræðingur í frásagnahönnun loftslagsumræðunnar.

Auglýsing

Guardian spyr: Felst „kraftaverkið“ í nærbuxum?

Breska vinstriútgáfan The Guardian fjallar með velþóknun um framtakið. Í frétt blaðsins segir að kraftaverk þurfi til að vekja almenning úr Þyrnirósarsvefni í loftslagsmálum. Jörðin sé stöðugt að hitna og bráðum verði ekki aftur snúið. „Getur kraftaverkið,“ spyr Guardian, „leynst í konu á nærbuxum með loftslagsorðræðu á vörum?“

Blaðamaður Guardian deilir með lesendum þeim áhyggjum sínum að áhorfendur að OnlyFans fyrirsætum ræða loftslagsvá hafi kannski í huga annað en jarðhita og sprengihreyfla bifreiða er þeir renna augum yfir kynþokkafullar konur afklæðast á skjánum. Boðskapurinn gæti farið fyrir ofan garð og neðan hjá þeim sem horfa frekar en hlusta.

Athygli eða áróður?

Vefsíða sem sérhæfir sig í loftslagsumræðu spyr hvort Guardian nái nokkru sinni að toppa fréttina um að fyrirsætur á nærbuxum geri kannski kraftaverk í þágu málstaðarins. Aðrir benda á að OnlyFans stúlkur trekkja frekar en Greta Thunberg.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing