Quentin Tarantino sakar Rosanna Arquette um hræsni – „Þú sást ekkert athugavert við þetta þegar þú naust góðs af því“

Leikstjórinn frægi, Quentin Tarantino, hefur brugðist af mikilli hörku við gagnrýni leikkonunnar Rosanna Arquette, sem gagnrýndi nýlega notkun hans á „N orðinu“ í kvikmyndum hans. Arquette sagði þetta í viðtali við The Sunday Times þar sem hún rifjaði upp hlutverk sitt í kvikmyndinni Pulp Fiction frá árinu 1994.

Arquette sagði í viðtalinu að þó hún telji myndina frábæra á margan hátt, sé hún almennt mjög ósátt við hversu oft Tarantino noti orðið í verkum sínum.

Auglýsing

„Persónulega er ég komin með nóg af notkun N orðsins, ég hata það,“ sagði Arquette. „Ég get ekki þolað að Tarantino hafi fengið frípassa á notkun þess. Þetta er ekki list, þetta er einfaldlega rasískt og ógeðslegt.“

Tarantino sakar Arquette um hræsni

Tarantino svaraði gagnrýninni með opnum pistli til Arquette þar sem hann gagnrýnir hana fyrir að tala illa um kvikmynd sem hún hafi sjálf tekið þátt í.

Í bréfinu segist Tarantino vona að sú athygli sem Arquette hafi fengið frá fjölmiðlum hafi verið þess virði. Hann bendir einnig á að hún hafi verið ánægð með að taka þátt í myndinni á sínum tíma og að hún hafi verið hin ánægðasta með allt saman meðan sjálf naut góðs af því.

Tarantino segir að mögulegt sé að Arquette líti öðruvísi á málið í dag, en að það sé ósmekklegt og aumkunarvert að gagnrýna verkefni eftir að hafa tekið við greiðslu fyrir þátttöku.

Umdeild orðnotkun lengi gagnrýnd

Gagnrýni Arquette er ekki sú fyrsta sem Tarantino fær vegna orðnotkunar í kvikmyndum sínum. Í Pulp Fiction kemur orðið fyrir um tuttugu sinnum, en í kvikmyndinni Django Unchained heyrist það nærri hundrað sinnum.

Leikararnir Jamie Foxx og Samuel L. Jackson hafa báðir meðal annars sagt að orðnotkunin endurspegli sögulegt samhengi og persónur kvikmyndanna.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing