Samfylking stórtapar fylgi – Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur í sókn

Samfylkingin er í frjálsu falli í Suðurkjördæmi samkvæmt könnun Gallup.  Tölurnar fyrir kjördæmið allt og stærsta þéttbýlið, Reykjanesbæ segja sömu sögu. Samfylkingin fellur en  Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur bæta við sig fylgi. Sunnlenska.is segir frá könnuninni á kjördæmavísu en Morgunblaðið stöðunni í Reykjanesbæ.

Í janúar mældist fylgi Samfylkingar í Suðurkjördæmi 26,4 prósent. Í febrúar tapaði flokkurinn sex prósentustigum og fer niður í 20, prósent fylgi. Miðflokkurinn er á mikilli siglingu, bætir við sig fjórum prósentustigum milli mánaða og fær 27 prósent fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn fær álíka fylgi og í janúar eða 24 prósent. Framsókn mælist með 9,4 prósent fylgi, Flokkur fólksins er í 7,7 prósentum. Viðreisn er í öldudal, líkt og Samfylking,  telst með 6,0 prósent fylgi. Ríkisstjórnarsamstarfið virðist ekki til vinsælda fallið í Suðurkjördæmi.

Auglýsing

Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur í Suðurkjördæmi

Febrúarkönnun Gallup myndi í kosningum gefa Miðflokki og Sjálfstæðisflokki þrjá þingmenn á hvorn flokk, Samfylking fengi tvo en Framsókn einn. Í stærsta þéttbýlinu í Suðurkjördæmi, Reykjanesbæ, mælist Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur. Flokkurinn stekkur upp úr 28 prósent fylgi í tæplega 38 prósent fylgi á milli kannana. Stökk um nær tíu prósentustig er sjaldgæfur atburður frá einni könnun til annarrar. Líkt og í kjördæminu í heild fellur fylgi Samfylkingar í Reykjanesbæ. Flokkurinn fer úr 30 prósent fylgi í 26,6 prósent. Samstarfsflokkurinn í ríkisstjórn, Viðreisn, mælist varla – er með 0,9 prósent fylgi. Miðflokkurinn fær 13,0 prósent fylgi og Framsóknarflokkurinn 10,0 prósent en aðrir minna.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing