Tveir skíðagöngumenn voru sóttir í neyðarskýli við Hreysiskvísl í Ásahreppi í gær eftir að hafa óskað eftir neyðaraðstoð í gegnum staðsetningartæki. Beiðnin barst Neyðarlínunni með milligöngu alþjóðlegrar þjónustumiðstöðvar eftir að neyðarboðið var virkjað.
Fréttin birtist fyrst á Sunnlenska.is.
Aðstæður á svæðinu voru erfiðar þar sem gul veðurviðvörun var í gildi á hálendinu og óvissa ríkti um færð. Af þeim sökum var brugðist við með víðtæku útkalli og björgunarsveitir kallaðar út víða af Suðurlandi, auk snjóbíla.
Þegar fyrstu viðbragðsaðilar nálguðust svæðið kom í ljós að færðin var betri en búist hafði verið við. Þá var ákveðið að draga úr viðbragðinu og snjóbílarnir afturkallaðir. Jeppar frá Flugbjörgunarsveitinni á Hellu og Björgunarsveitinni Dagrenningu á Hvolsvelli héldu áfram að staðnum.
Leituðu skjóls eftir langa göngu
Skíðagöngumennirnir, sem eru erlent par, höfðu verið á göngu í um fimm daga og lagt af stað frá Akureyri. Þau höfðu komið sér fyrir í gömlu neyðarskýli á svæðinu þegar þau sendu út neyðarboðið. Samkvæmt upplýsingum frá viðbragðsaðila var annað þeirra orðið talsvert þrekað og talið mögulegt að viðkomandi væri með kalsár í andliti.
Símasamband náðist við fólkið á meðan björgun stóð yfir og var fylgst með ástandi þeirra þar til björgunarsveitir komu á vettvang.
Flutt á heilsugæslu
Fyrstu björgunarmenn komu að Hreysiskvísl skömmu fyrir hádegi. Skíðagöngumennirnir voru þá fluttir í hlýjan bíl ásamt búnaði sínum.
Þaðan var haldið til Hellu þar sem þau komu á heilsugæsluna um klukkan tvö síðdegis til frekari skoðunar og aðhlynningar. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um líðan þeirra að svo stöddu.