Sómölsk stúlka send í endurmenntunarbúðir- nú höfðar hún mál gegn stjórnvöldum í Danmörku

Sextán ára sómalískri stúlku, Armal, var haldið fanginni í tveimur endurmenntunarbúðum í Sómalíu í um hálft annað ár.

Í búðunum var hún látin sæta íslamskri innrætingu, frelsissviptingu, ofbeldi og vanvirðandi meðferð áður en hún flúði.

Auglýsing

Amal stefnir Árósum og utanríkisráðuneytinu. Hún krefst 400.000 danskra króna í bætur. Hún höfðar málið með aðstoð danska lögmannafélagsins.

,,Yfirvöld stóðu ekki við þá skyldu sína að hjálpa“ skrifar lögmannafélagið í fréttatilkynningu.

Sveitarfélagið hunsaði ítrekar viðvaranir

Stjórnmálamenn í Árósum voru meðvitaðir um hve alvarleg staða Amal var segir lögmannafélagið. Þrátt fyrir viðvaranir, tilkynningar og hjálparkall frá Amal gerðist ekkert.

Sumarið 2018 var því engin fyrirstaða fyrir fjölskylduna að fara með Amal í frí til Sómalíu.

Flug og hikandi ráðuneyti
Eftir komu fjölskyldunnar til Sómalíu var ótti Amal staðfestur, sami ótti og hún hafði látið stjórnendur Árósa vita um.

Veruleikinn varð að 16 mánaða innilokum með íslamskri innrætingu, ofbeldi, niðurlægingu og vanvirðandi meðferð.

Hún ásamt fleiri stúlkum flúðu búðirnar í nóvember 2019.

Flóttinn fór í gengum höfuðborg Sómalíu.

Hún faldi sig og reyndi að fá hjálp frá utanríkisráðuneytinu.

Amal segir að ráðuneytið hafi fengið upplýsingar 11. nóvember um að hún væri í felum, en það var ekki fyrr en 19. janúar 2020 sem danski sendiherrann í Kenía hafði samband við sómölsk yfirvöld.

Daginn eftir fylgdi sendiherrann henni í flug, en þá hafði hún verið í tvo mánuði í felum með vitneskju utanríkisráðuneytisins og beið eftir hjálp.

Grundvallarspurning um ábyrgð yfirvalda

Málflutningur í málinu gegn bæjarfélaginu og ráðuneytinu hófst þriðjudaginn 6. maí 2025.

Málið er hluti af málflutningsverkefni Lögmannasamfélagsins og Justitia, en Dreyer sjóðurinn styrkir málsóknina ásamt réttarsjóði borgarar í Danmörku.

Báðir þessir aðilar segja að málið sé höfðað til að staðfesta skyldu stjórnvalda til gæta réttaröryggis borgara í viðkvæmri stöðu.

Ber að vernda börn

Birgitte Aren Eiríksson leynir ekki tilgangi málsóknarinnar gegn stjórnvöldum.

,,Með því að fara með málið fyrir dómstóla vonumst við eftir að geta gefið Amal orð dómsstólsins um að sveitarfélaginu og ráðuneytinu beri skylda til að vernda og hjálpa börnum sem eru eða eiga á hættu að vera send í endurmenntunarbúðir erlendis með því líkamlega og andlega ofbeldi sem því fylgir.“

Lögfræðingur Amals og fyrrverandi forstjóri Mannréttindastofnunar Danmerkur, Jonas Christoffersen, orðar það svo:
,,Við teljum að sveitarfélagið beri ábyrgð vegna þess að þau hunsuðu sérstakar viðvaranir frá Amal um að foreldrar hennar myndu senda hana í endurmenntunarbúðir og utanríkisráðuneytið ber ábyrgð vegna þess að það brást ekki við með skilvirkum og réttum hætti þegar hún flúði úr búðunum og bað um hjálp til að komast heim.“

Þegar Amal sótti fyrst skaðabætur til stjórnvalda, í desember 2022, höfnuðu báðir aðilar kröfunni.

Af þeirri ástæðu rataði málið til dómstóla.

Amal býr í Danmörku og stundar þar háskólanám.

Hún vildi ekki tilkynna foreldra sína til lögreglu og því er ekki talin ástæða til að hefja sakamál gegn þeim.

Heimild Den Korte Avis | Amal blev sendt i somalisk genopdragelseslejr – nu sagsøger hun Aarhus Kommune og Udenrigsministeriet med krav om erstatning

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing