Svala Björgvins stígur fram og styður Hafdísi – segist sjálf hafa orðið fyrir ofbeldi af hendi Kleina

Söngkonan Svala Björgvins birti í dag orðsendingu í story á Instagram þar sem hún lýsir yfir stuðningi við einkaþjálfarann Hafdísi Björgu Kristjánsdóttur, sem fyrr í dag sagði frá ofbeldi sem hún segist hafa orðið fyrir af hendi fyrrverandi kærasta síns, Kristjáns Einars Sigurbjörnssonar, oft kallaður Kleini.

Í færslu á Instagram segist Svala sjálf hafa orðið fyrir ofbeldi af hendi sama manns.

Auglýsing

„Stend með þér elsku gull og öllum þolendum ofbeldis. Ég er sjálf þolandi ofbeldis af sama manni,“ skrifar Svala í færslu sinni þar sem hún vitnar Hafdísi.

Í færslunni segir hún einnig að þolendur séu sterkir og hvetur aðra sem hafa upplifað ofbeldi til að standa saman.

Skjáskot af færslu Svölu

Hafdís steig fram fyrr í dag

Fyrr í dag birti Hafdís Björg Kristjánsdóttir langa færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún lýsir ofbeldissambandi sem hún segist hafa verið í með Kristjáni Einari. Hún sagði að henni hefði reynst erfitt að fylgjast með fréttum undanfarið og að hún kenni sér að hluta fyrir að hafa ekki stigið fyrr fram og varað aðrar konur við.

Hún sagði einnig að hún hefði ítrekað leitað til lögreglu á meðan sambandið stóð yfir og að henni hefði verið hótað lífláti. Að hennar sögn hafi hún hringt margoft í lögregluna en hann verið látinn laus skömmu síðar.

Hafdís sagðist þó stíga fram nú þar sem hún gæti ekki lengur þagað.

Áhrifavaldurinn sem handtekinn var í tengslum við meinta, sérlega grófa hópnauðgun á Akureyri er Kleini – Fyrrum kærasta stígur fram og segir frá ofbeldi

Rannsókn lögreglu stendur yfir

Kristján Einar hefur undanfarið verið nefndur í tengslum við rannsókn lögreglu á Norðurlandi eystra á alvarlegu kynferðisbroti sem talið er hafa átt sér stað á hóteli á Akureyri um helgina. Lögregla hefur staðfest að fleiri en einn einstaklingur sé til rannsóknar í málinu en hefur ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing