Var Zelensky að hóta því að beita forsætisráðherra Ungverjalands ofbeldi?

Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, lét undarleg orð flakka um Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, í nýlegri ræðu þar sem hann ræddi um fjárhagsaðstoð Evrópusambandsins til Úkraínu. Ummælin tengjast deilu sem nú stendur yfir innan Evrópusambandsins um stóran lánapakka til stuðnings Úkraínu.

Í ræðunni sagðist Zelensky vona að „ákveðin manneskja innan Evrópusambandsins“ myndi ekki hindra 90 milljarða evra fjárhagsaðstoð til Úkraínu, sem ætlað er að styrkja bæði her og efnahag landsins. Ef það gerðist, sagði hann, gæti Úkraína neyðst til að bregðast við á annan hátt.

Auglýsing

„Annars munum við gefa hermönnum okkar heimilisfang viðkomandi, svo þeir geti farið og rætt við hann á sínu tungumáli,“ sagði Zelensky í ræðunni.

Ummælin hafa verið túlkuð sem hótun í garð Orbáns, sem hefur ítrekað gagnrýnt stefnu Evrópusambandsins gagnvart Úkraínu og reynt að stöðva eða tefja ákveðna aðstoðarpakka til landsins vegna harðradeilna í orkumálum.

Deila innan Evrópusambandsins stigmagnast

Deilan tengist fyrst og fremst miklum ágreiningi um orkumál og flutning rússneskrar olíu til Mið Evrópu. Ungverjaland og Slóvakía hafa undanfarið átt í harðri deilu við bæði Evrópusambandið og Úkraínu eftir að sprenging varð í hluta Druzhba olíuleiðslunnar sem flytur rússneska olíu til landanna.

Ungverjaland og Slóvakía í harðri deilu við Evrópusambandið og Úkraínu – Hóta refsiaðgerðum gegn Úkraínu og neita að skrifa undir lán

Sprengingin stöðvaði tímabundið flutning olíu til Ungverjalands og Slóvakíu. Úkraínsk stjórnvöld hafa sagt að rússnesk drónaárás hafi valdið tjóninu, en stjórnvöld í Búdapest og Bratislava hafa gefið í skyn að tafir á viðgerðum sé pólitískur þrýstingur frá Kænugarði.

Í kjölfarið hafa bæði Ungverjaland og Slóvakía gripið til þeirra ráðstafana að stöðva útflutning díselolíu til Úkraínu og hótað að draga úr eða stöðva raforkusölu til landsins.

Samhliða þessu hefur Ungverjaland lýst yfir að það muni hindra 90 milljarða evra vaxtalaust lán Evrópusambandsins til Úkraínu þar til olíuflutningar um Druzhba hefjast á ný.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing