1.300 manns hafa styrkt Reykjavík Media um rúmlega sjö milljónir eftir Kastljósið

Um 1.300 manns hafa lagt til rúmlega sjö milljónir króna í hópfjármögnun fjölmiðilsins Reykjavík Media þegar þetta er skrifað. Söfnunin hófst í gær í kjölfarið á sérstökum Kastljósþætti um aflandsfélög íslenskra stjórnmálamanna sem fyrirtækið vann í samstarfi við RÚV.

Takmarkið var að safna 40 þúsund evrum eða um 5,6 milljónum króna en söfnunin er nú komin upp í tæplega 52 þúsund evrur en söfnunin heldur áfram þrátt fyrir að fyrsta takmarkinu hafi verið náð. Mánuður er eftir af söfnuninni.

Sjá einnig: Þúsundir boða koma sína á mótmæli við Austurvöll, Sigmundur Davíð hyggst ræða við fjölmiðla

Blaðamennirnir Jóhannes Kr. Kristjánsson og Aðalsteinn Kjartansson eru á bakvið Reykjavík Media. Fyrirtækið heldur úti vefmiðli á slóðinni RME.is þar sem stendur til að birta myndbönd, rannsóknargreinar, viðtöl og annað áhugavert efni um fólkið í samfélaginu.

„Í samstarfi við aðra fjölmiðla og samtök, eins og International Consortium of Investigative Journalists og Miðstöð rannsóknarblaðamennsku á Íslandi, munum við vinna fréttirnar okkar fyrir þann vettvang sem hentar þeim best hverju sinni,“ segir í texta sem fylgir söfnuninni á Karolina Fund.

„Hjá okkur er það efnið sem skiptir máli og við veljum leiðir til að miðla því eftir því hvernig það er sem skýrast fyrir lesendur okkar. Við látum ekki sérhagsmuni eða þrýsting valdhafa hafa áhrif á fréttirnar okkar heldur höldum trú okkar og tryggð við lesendur og áhorfendur; hópinn sem Reykjavik Media starfar fyrst og fremst fyrir.“

Smelltu hér til að styrkja Reykjavík Media.

Auglýsing

læk

Instagram