10 algengar spurningar sem fólk spyr um Costco í Kauptúni: „Já, það er mikið að gera!“

Það er ekki liðin vika frá því að verslun Costco var opnuð í Kauptúni í Garðabæ og landsmenn virðast vera komnir langt á vel með að tæma búðina. Allt í lagi, það eru líklega ýkjur en það hefur verið brjálað að gera síðustu daga.

Sjá einnig: Costco-ráðleggingar konunnar sem hefur mætt aðeins of oft í Costco í „útlöndum“

Ef fólk nennir að bíða í bílaröðinni inn á bílastæðið, tekst að finna bílastæði, missir ekki þolinmæðina í leit sinni á innkaupakerru til að komast inn í búðina, tapar ekki geðheilsunni á leið sinni í gegnum búðina og heldur ró sinni í langri biðröð að kassanum eru allar líkur á því að einhverjir hafi gert og muni gera góð kaup á næstu dögum.

Tæplega fimmtíu þúsund manns hafa bæst í Facebook-hópinn Keypt í Costco Ísl. – Myndir og verð eftir að búðin var opnuð. Þar hafa margir deilt gleðinni og sagt frá góðum kaupum í Costco. Aðrir spyrja spurninga, til að mynda hvort ákveðin vara sé til í búðinni eða hvort mikið sé að gera þá stundina. Sumar spurningarnar koma aftur og aftur og ákvað Nútíminn að taka saman tíu algengar spurningar sem borist hafa.

Nei, virðisaukaskattinum er ekki bætt við verð vörunnar þegar hún er stimpluð inn á afgreiðslukassanum. Þú sérð heildarverðið fyrir vöruna á verðmiðanum.

Já, þú verður að hafa sama lögheimili og makinn ef þið ætlið að nýta aukakortið sem fylgir með einstaklingsaðildinni.

Nei, það eru ekki pokar við afgreiðslukassana í Costco. Þú getur aftur á móti fengið passakassa til að setja vörurnar í.

Já, þú getur sótt og keypt lyfin þín í apótekinu í Costco. Apótekið er með aðgang að lyfjagáttinni eins og önnur apótek á Íslandi.

Nei, Costco selur ekki tóbak.

Já, ef það er enginn kerra laus þegar þú ætlar inn í búðina þá þarft þú að bíða eftir því að næsta kerra losni svo þú fáir að fara inn í búðina. Jafnvel þó að þú ætlir bara að kaupa eitt súkkulaðistykki.

Já, það eru hjólastólar fyrir viðskiptavini í Costco. Bæði stóll sem þú getur fengið lánaðan og stóll sem þú getur keypt.

Nei, fyrsta mánuðinn þarft þú ekki að bíða í löngu röðinni til að láta taka mynd af þér til að setja á kortið. Ef þú ætlar að kaupa eldsneyti þá þarft þú bara að skanna strikamerkið sem er aftan á kortinu, ekki sýna mynd.

Já, það er mikið að gera í Costco þessa dagana. Verður líklega eitthvað áfram.

Nei, einstaklingar geta ekki keypt áfengi í Costco. Það er aðeins fyrir fyrirtæki með vínveitingaleyfi.

Auglýsing

læk

Instagram