30 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun Kára Stefáns

Tæplega 30 þúsund manns hafa á tveimur sólarhringum skrifað undir áskorun Kára Stefánssonar á vefnum endurreisn.is. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Þau sem skrifa undir krefjast þess að Alþingi verji árlega 11% af vergri landsframleiðslu til reksturs heilbrigðiskerfisins í stað 8,7%, eins gert er nú. Undirskriftunum fjölgar hratt en í gærkvöldi kom fram á mbl.is að undirskriftirnar vera orðnar 27 þúsund talsins.

Á vef RÚV kemur fram að samkvæmt athugunum Rúnars Vilhjálmssonar prófessors í félagsfræði við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands er Ísland í 23. sæti innan OECD þegar tekið er mið af útgjöldum sem hlutfalli af landsframleiðslu.

Ísland var í upphafi aldar á meðal efstu þjóða eða í 6.sæti. Í Svíðþjóð er hlutfallið 11% og 10,4 prósent í Danmörku.

Kári segir á vef undirskriftasöfnunarinnar að heilbrigðiskerfi sé einn af hornsteinum nútímasamfélags og sýni vilja þess til þess að hlúa að þeim sem eru sjúkir og meiddir.

„Gott heilbrigðiskerfi endurspeglar sjálfsagða samhygð en lélegt heilbrigðiskerfi óásættanlegan kulda gagnvart þeim sem eru hjálpar þurfi. Það er okkar mat að á síðasta aldarfjórðungi hafi stjórnvöld vannært íslenskt heilbrigðiskerfi, að  því marki að það sé ekki lengur þess megnugt að sinna hlutverki sínu sem skyldi.“

Kári segir að heilbrigðiskerfið hafi ekki fylgt framþróun í læknisfræði. „Hvorki hvað snertir notkun á tækjabúnaði né bestu lyfjum og helstu stofnanir þess eru hýstar á þann veg að það kemur í veg fyrir að hægt sé að veita nægilega mikla og góða þjónustu,“ segir hann.

„Hnignun heilbrigðiskerfisins hefur að mestu leyti verið óháð því hvaða stjórnmálaflokkar hafa verið  við völd vegna þess að hún hefur verið stöðug og samfelld.“

Auglýsing

læk

Instagram