Ásdís Rán er mjaðmagrindarbrotin eftir að hafa fallið aftur á bak niður stiga

Fyrirsætan og athafnakonan Ásdís Rán Gunnarsdóttir féll aftur á bak niður steinsteyptan stiga í síðustu viku. Hún var með þvottabala í höndunum, gat ekki borið fyrir sig höndunum og liggur nú mjaðmagrindarbrotin á Landspítalanum.

Þetta staðfestir Ásdís Rán í samtali við Nútímann. Hún hefur dvalið á spítalanum í viku og verður þar áfram í nokkra daga. Ljóst er að hún verður nokkrar vikur að jafna sig því auk þess að brotna á tveimur stöðum í mjaðmagrindinni er hún jafnframt handleggsbrotin og rifbeinsbrotin.

Ásdís Rán ætlaði að vera viðstödd Balcan Fashion Week í Búlgaríu en mun í staðinn njóta þess sem Landspítalinn hefur upp á að bjóða. Nútíminn óskar henni góðs bata og vonar að hún komist fljótt á fætur aftur.

Auglýsing

læk

Instagram