Ávöxtur samstarfs Kanye West og Adidas á leiðinni til Reykjavíkur, bara seldir í einni verslun

Verslunin Húrra Reykjavík við Hverfisgötu er á lista yfir verslanir sem mun hefja sölu á hinum eftirsóttu Adidas Yeezy 750 Boost strigaskó 11. júní næstkomandi. Húrra Reykjavík er eina verslunin á landinu sem kemur til með að selja skóna sem verða gráir.

Skórnir eru ávöxtur samstarfs Adidas og rapparans Kanye West og áhugafólk um strigaskó bíður gríðarlega spennt. Samstarf Kanye West og Adidas hófst árið 2013 og hefur vakið mikla athygli.

Skórnir fást ávallt í mjög takmörkuðu upplagi og eru seldir í völdum verslunum víða um heim. Langar raðir hafa myndast fyrir utan verslanir víða og dæmi eru um að fólk safnist saman viku áður en sala hefst.

Eins og Nútíminn greindi frá á dögunum er Húrra Reykjavík á sérstökum lista Nike yfir verslanir sem fá að selja fágæta strigaskó frá fyrirtækinu. Í febrúar komst verslunin á svipaðan lista hjá Adidas.

Síðast þegar Húrra bauð upp á Yeezy Boost strigaskó höfðu fjölmargir samband við Sindra Snæ Jensson, annan eiganda Húrra Reykjavíkur eftir að það spurðist út að skórnir væru væntanlegir til landsins.

Í samtali við Nútímann sagðist Sindri hafa fengið tugi skilaboða og að fólk vilji ýmist vita hvað skórnir kosta, hversu mörg pör verði seld á Íslandi og sumir vilja hreinlega komast framfyrir röðina. Ekkert slíkt var hins vegar í boði og daginn sem skórnir fóru í sölu myndaðist röð fyrir utan Húrra áður en verslunin opnaði.

„Við höfum aðgang að öllu sem er væntanlegt, þar á meðal Yeezy ef þetta gengur vel,“ sagði Sindri þá og benti á að verslunum hafi tekist að klúðrað sínum málum, t.d. með því að hleypa vinum og vandamönnum fram fyrir raðir.

„Við ætlum að vera mjög fagmannlegir. Það verður ekki gerð ein einasta undantekning,“ sagði hann og búast má við að það sama sé upp á teningnum nú.

Auglýsing

læk

Instagram