Bandarískir foreldrar æfir yfir umfjöllun um endaþarmsmök í Teen Vogue: „Kenna börnum að stunda endaþarmsmök“

Bandarískir foreldrar eru æfir yfir umfjöllun um endaþarmsmök sem var birt í tímaritinu Teen Vogue á dögunum. Kynfræðingurinn Gigi Engle skrifaði umfjöllunina sem er að hennar sögn ætluð táningum, byrjendum og forvitnum. Þetta kemur fram á vefnum Pink News.

Fyrirsögn greinarinnar er „Endaþarmsmök: Það sem þú þarft að vita“ og í undirfyrirsögn kemur fram að greinin útskýri hvernig á að fara rétt að. „Þegar kemur að líkama þínum er mikilvægt að hafa staðreyndir á hreinu,“ segir Gigi Engle í upphafi greinarinnar.

Að fálma um í myrkrinu gerir hvorki kynheilsu þinni né skilningi á líkama þínum neina greiða.

Mikil áhersla er lögð á samþykki og smokkanotkun í greininni sem er ætluð bæði körlum og konum.

Kristilega vefsíðan The Stream vísar í greinina í umfjöllun undir fyrirsögninni: „Vaknið, mömmur og pabbar!“ Varað er við umfjöllun Teen Vogue sem er sögð gefa „unglingsdætrum skýrar leiðbeiningar um hvernig á að láta karla misnota sig á hættulegan hátt.“

Þá er þessi móðir hér afar ósátt við umfjöllunina og brennir eintak af Teen Vogue í myndbandi á Youtube

„Þau eru að kenna börnum að stunda endaþarmsmök,“ segir hún.

Á vefnum Pink News kemur einnig fram að femínistar hafi gagnrýnt umfjöllunina fyrir að sleppa því að tiltaka snípinn í skýringarmyndum sínum. JJ Barnes segir á vef breska dagblaðsins The Independent að snípurinn, miðpunktur kynferðislegrar ánægju kvenna, hafi verið fjarlægður. „Hvað á það að kenna táningsstúlkum?“

Barnes segir að umfjöllun Teen Vogue sé furðuleg og sýni að konur séu enn þá skilgreindar út frá samskiptum sínum við karla.

Auglýsing

læk

Instagram