Borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina segir frelsun geirvörtunnar hámark plebbismans

Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina, segir á Facebook-síðu sinni í dag að „frelsum geirvörtuna-dagurinn“ sé „alveg hámark plebbismans“.

Sjá einnig: Þingkona tekur þátt í brjóstabyltingunni

Konur eru í dag hvattar til að frelsa geir­vört­una í nafni jafnréttisByltingin hófst í gær í umræðu um #FreeTheNipple daginn í Verzló á Twitter.

Verzlunarskólanemandinn Adda Þóreyjardóttir Smáradóttir birti brjóstamynd af sér sem var aðeins í nokkrar mínútur samfélagsmiðlinum áður en hún tók hana út. Ungur maður gerði lítið úr Öddu í hádeginu í dag en stuðningsyfirlýsingum hefur rignt yfir hana og málstaðinn síðan.

Hún sagði í samtali við Nútímann í gær að baráttan snúist um að konur eigi að geta verið berar að ofan eins og strákar. Að litið sé á það sem eðlilegan hlut.

Kassamerkið #freethenipple er notað til að halda utan um umræðu á Twitter þar sem konur berjast fyrir að fá að vera berar að ofan á myndum, rétt eins og karlar, án þess að þær séu að reyna að vera kynþokkafullar.

Byltingin hefur teygt anga sína inn á Alþingi en Björt Ólafsdóttir, þingkona Bjartrar framtíðar, birti brjóstamynd af sér á Twitter í gær undir yfirskriftinni: „Þessi er hérna til að gefa börnum að borða. Troðiði því upp í feðraveldið á ykkur.“

Auglýsing

læk

Instagram