Borgarleikhúsið sendir frá sér tilkynningu: „Ákvörðun um uppsögnina var vel ígrunduð“

Ákvörðunin um uppsögn Atla Rafns Sigurðarsonar var vel ígrunduð og tekin að vandlega athuguðu máli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Borgarleikhúsinu.

Tilkynningin frá Borgarleikhúsinu er svohljóðandi:

Vegna umfjöllunar um frestun frumsýningar leiksýningarinnar Medeu vill Borgarleikhúsið koma eftirfarandi á framfæri.

Ástæðan fyrir frestuninni eru breytingar á leikarahópi Medeu en einum af aðalleikurunum í sýningunni hefur verið sagt upp störfum hjá Borgarleikhúsinu. Ákvörðun um uppsögnina var vel ígrunduð og tekin að vandlega athuguðu máli. Stjórn Leikfélags Reykjavíkur og leikhússtjóri voru einhuga um ákvörðunina.

Varðandi Medeu, sem átti að frumsýna þann 29. desember, þá verður ný dagsetning tilkynnt síðar.

Eins og Nútíminn greindi frá í dag þá hefur leikaranum Atla Rafni Sigurðarsyni hefur verið sagt upp störfum í Borgarleikhúsinu. Samkvæmt Vísi er ástæðan ásakanir sem hafa verið settar fram í tengslum við #metoo-byltingina. Í frétt DV er svipað uppi á teningnum; þar er talað um að Atli hafi verið sakaður um kynferðislega áreitni í lokuðum hópi kvenna í sviðlistum á Facebook.

587 konur sem starfa í sviðslistum á Íslandi skrifuðu undir áskorun í lok nóvember þar sem þess er krafist að karlar inna geirans taki ábyrgð og að yfirvöld, leikhús og framleiðslufyrirtæki taki af festu á kynferðislegri áreitni, ofbeldi og mismunun og komi sér upp verkferlum og viðbragðsáætlun.

Sjá einnig: Konur í sviðslistum stíga fram: „Þú veist að hann réði þig bara vegna þess að hann vill komast í nærbuxurnar hjá þér“

Engin svör fást frá Borgarleikhúsinu um málið en á Vísi kemur fram að Kristín Eysteinsdóttir leikhússtjóri hafi fyrirvaralaust vikið Atla Rafni frá húsinu.

Búið er að taka leiksýninguna Medeu í leikstjórn Hörpu Arnardóttur úr sölu. Til stóð að frumsýna sýninguna 29. desember næstkomandi og átti Atli Rafn að vera í stóru hlutverki.

Í frétt Vísis kemur fram að Atli sé að skoða rétt sinn. „Stjórnendur leikhússins vísa hins vegar til þess að það sé sjálfseignastofnun og þurfi því ekki að fara eftir þeim verkferlum sem opinberar stofnanir þurfa að hlíta,“ segir í frétt Vísis.

Auglýsing

læk

Instagram