Dagskrá Innipúkans í ár klár

Innipúkinn verður haldinn í 18. sinn í miðborg Reykjavíkur um verslunarmannahelgina. Nú er dagskrá hátíðarinnar í ár klár og óhætt að fullyrða að hún hefur sjaldan eða aldrei litið betur út. Nýlega var tilkynnt að hátíðin muni færa sig úr Kvosinni og yfir á Grandann, þar sem hún mun í fyrsta sinn fara samtímis fram á Messanum og Bryggjunni Brugghús. Hátíðin mun þó áfram fara að stærstum hluta fram innandyra.

Dagskráin í ár er einstaklega glæsileg og fjölbreytt. Meðal þeirra listamanna sem bæst hafa við dagskrána eru Auður, Daði Freyr og sjálfur Bjartmar Guðlaugsson. Bætast þeir í hóp ekki ómerkari spámanna en; Hildur, Between Mountains, Vök, Dj flugvél og geimskip, Frikki Dór, Joey Christ, Moses Hightower, Kælan mikla og Jónas Sig.

Tónleikadagskrá Innipúkans:

-Föstudagur

Between Mountains

Friðrik Dór

Jónas Sig

Kælan mikla

Valdimar

Joey Christ

-Laugardagur

Blóðmör

Dj flugvél & geimskip

Hildur

Matthildur

Moses Hightower

Vök

-Sunnudagur

Auður

Bjartmar Guðlaugsson

Daði Freyr

Sprite Zero Klan

Sturla Atlas

Una Schram

Líkt og undanfarin ár fer fram ókeypis hátíðardagskrá utandyra yfir hátíðardagana, og verður því alvöru bryggjustemning á bryggjuni fyrir utan staðina í boði Red Bull, Úitpúkinn. Fram koma:

BRÍET (live)

GDRN (live)

SVALA (live)

DJ aggalá

DJ Battlestar

Dj Katla

DJ Motherfunker

DJ Mokki

DJ Vala

JFDR (DJ-set)

SAKANA (DJ-set)

Sólveig Matthildur (DJ-set)

Dj Sunna Ben

Vök (DJ-set)

Þóra Sayaka (DJ-set)

Miðasala á hátíðina er nú hafin á Tix.is . Armband á hátíðina gildir alla helgina bæði á Bryggjuna Brugghús og Messann. Einnig er hægt að kaupa miða inn á stök kvöld. Götuhátíðardagskráin sem fram fer yfir daginn er ókeypis og opin öllum.

Auglýsing

læk

Instagram