VerslunarmannaHelgi – Heima í stofu!

Verslunarmanna Helgi, í beinni frá Borginni.

Helgi Björnsson ætlar að heimsækja alla landsmenn, hvert á land sem er um Verslunarmannahelgina en hann verður með kvöldtónleika í beinu streymi frá Hótel Borg á laugardagskvöldinu 31.júlí. Helgi verður ekki einn á ferð, Reiðmenn vindanna verða með honum og saman taka þeir á móti góðum gestum.

„Við ætlum að eiga saman gæðastund og bjóða upp á vandaða tónlistardagskrá í takt við það sem við höfum verið að gera (en við) og stráum fallegum sumar tónum yfir þetta. Mig langaði auðvitað að fara um allt land og hitta alla um Verslunarmannahelgina og þetta var í raun besta leiðin til þess,” segir Helgi.

Þannig geta landsmenn verið gestir Heima með Helga á einfaldan og þægilegan hátt um Verslunarmannahelgina

Kvöldskemmtun hans og Reiðmannanna verður aðgengileg öllum, hvar sem þeir eru í heimunum. Streymið hefst klukkan 21:00 og hægt að tryggja sér aðgengi í gegnum Símann, Vodafone og tix.is

Auglýsing

læk

Instagram