Innipúkinn snýr aftur – Vinsælustu tónlistarmenn landsins í Reykjavík um verslunarmannahelgina

Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í Reykjavík um verslunarmannahelgina og hófst miðasala núna í hádeginu.

Margir vinsælustu tónlistarmenn landsins koma fram á hátíðinni í ár og má þar nefna Bjartar sveiflur, Bríet, Emmsjé Gauti, Eyþór Ingi, Floni, GDRN, gugusar, Hipsumaps, Mammút, Reykjavíkudrætur og Teitur Magnússon. Á opnunarkvöldi hátíðarinnar mun hin ástsæla Birgitta Haukdal og hljómsveitin Moses Hightower leiða saman hesta sína og koma fram saman í fyrsta skipti!

Forsvarsmenn Innipúkans eru afar stoltir af fjöbreyttri dagskrá Innipúkans í ár og bjartsýn á að það takist að halda hátíðina með pompi og prakt. Hætta þurfti við hátíðina með eins dags fyrirvara í fyrra vegna Covid.

„Það er alltaf gott veður á Innipúkanum. Og bara gaman!“ segir í tilkynningu.

NÝ STAÐSETNING

Innipúkinn færir sig af Grandanum, þar sem hátíðin hefur verið haldin síðustu ár, og yfir á Ingólfsstræti. Aðaltónleikadagskráin fer að sjálfsögðu fram innandyra, í Gamla bíó og efri hæð Röntgen. Á svæðinu verður sannkölluð hátíðarstemning alla helgina enda verður nóg um að vera á götunni fyrir utan staðina sem og inni á stöðunum sjálfum. Boðið verður upp á fjölbreytta tónleikadagskrá föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld, 30. júlí-1. ágúst.

Á útisvæðinu má gera má ráð fyrir gamalreyndum púka-dagskrárliðum á borð við árlegum lista- og fatamarkaði, ásamt plötusnúðum og veitingasölu.

MIÐASALA

Miðasala á hátíðina er hafin og fer fram á tix.is. Armband á hátíðina gildir alla helgina. Einnig verður hægt að kaupa miða á stök kvöld hátíðarinnar og fara þeir miðar í sölu fljótlega. Síðustu ár hefur verið uppselt á Innipúkann – og því um að gera tryggja sér miða í tíma.

Miðaverð

– 3-ja daga hátíðarpassi: 8.990 kr.

– Miði á stakt tónleikakvöld: 4.990 kr.

LISTAMENN SEM KOMA FRAM:

•             Allenheimer

•             Birgitta Haukdal & Moses Hightower

•             Bjartar sveiflur

•             Bríet

•             Emmsjé Gauti

•             Eyþór Ingi

•             Floni

•             GDRN

•             gugusar

•             Hipsumhaps

•             Inspector Spacetime

•             krassasig

•             Mammút

•             Reykjavíkurdætur

•             Skoffín

•             Teitur Magnússon

•             Une Misére

Auglýsing

læk

Instagram