Eigendur Dead Rabbit í New York reyna að kæra eigendur Dead Rabbit í Reykjavík

Eigendur barsins fræga Dead Rabbit í New York reyna nú að kæra eigendur bars með sama nafni sem opnar í Reykjavík í febrúar. Þetta kemur fram á vef New York Daily News.

Dead Rabbit opnar í Austurstræti 3 þar sem Brooklyn Bar var áður til húsa. Þar áður var Subway í húsnæðinu. Dead Rabbit í New York er margverðlaunaður og þekktur fyrir kokteilana sína.

Í frétt New York Daily News kemur fram að eigendur Dead Rabbit eigi vörumerkið í Bandaríkjunum en að erfiðlega gangi að leggja fram kæru vegna þess að barinn á Íslandi sé ekki innan lögsögu Evrópusambandsins.

Sean Muldoon, annar eigandi barsins í New York, segir að fyrrverandi starfsmaður Íslendinganna hafi haft samband og sagt frá áformum þeirra. Hann segir að eigendurnir á Íslandi hafi keypt kokteillista barsins í New York og hafi í hyggju að endurgera þá á Íslandi.

Hann óttast að fólk haldi að þeir félagar séu einnig að reka staðinn á Íslandi.

Við höfum lagt blóð, svita og tár í þennan stað og við höfum áhyggjur af þeir leggi ekki sama metnað í staðinn og við. Ef einhver ætlar að opna nýjan Dead Rabbit þá ættu við að gera það.

Andrés Björns­son, ann­ar eig­andi Dead Rabbit í Aust­ur­stræti, sagði í samtali við mbl.is á dögunum að eigendur Dead Rabbit í New York hafi ekki sett sig í samband við sig og eigi ekki einkarétt á nafninu.

Hann bendir á að nafnið eigi ræt­ur að rekja til írsks geng­is í New York á nítj­ándu öld sem öðlaðist frægð að nýju í kvik­mynd­inni Gangs of New York eft­ir Mart­in Scorsese og hafi því aug­ljósa teng­ingu fyr­ir írsk­an bar.

Andrés seg­ir á mbl.is að hann hafi vitað af staðnum í New York og að þeir séu ekki að herma eft­ir hon­um — hug­mynda­fræðin á bak við Dead Rabbit í Aust­ur­stræti sé önn­ur og út­litið ólíkt.

Auglýsing

læk

Instagram