Hin sex mánaða gamla Chanco er með tæplega 100 þúsund fylgjendur á Instagram en hún hefur vakið mikla athygli hjá netverjum vegna þess hve hárprúð hún er.
Chanco fæddist í desember á síðasta ári með myndarlegan makka sem hefur bara síkkað síðan þá
Foreldrar hennar byrjuðu að setja myndir af henni á Instagram í maí og á rúmlega tveimur mánuðum hefur hún sankað að sér tæplega 100 þúsund fylgjendum
Á Instagram-síðunni geta fylgjendur fylgst með lífi Chanco litlu
En hún gæðir sér meðal annars á hrísgrjónagraut
Fær sér ís í hitabylgjunni sem nú gengur yfir Japan
Og getur sett slaufu í hárið
Síðan skellir hún sér í klippingu enda þarf að hugsa vel um makkann