Erlendir miðlar fjalla um jarðarför Okjökuls

Formleg kveðjuathöfn á jöklinum Ok í Kaldadal hefur vakið heimsathygli. Miðlar á borð við BBC, AP og Buzzfeed hafa fjallað um málið. Ok er fyrsti íslenski jökullinn sem hverfur vegna loftslagsbreytinga.

Katrín Jak­obs­dótt­ir for­sæt­is­ráðherra var á staðnum þegar jökullinn var formlega kvaddur og hún hvatti til aðgerða í loftslagsmálum.

„En í dag rísum við líka upp, efldari en nokkru sinni í baráttunni fyrir náttúrunni. Við stöndum frammi fyrir fordæmalausri stöðu. Í dag er tími aðgerða því afleiðingar hamfarahlýnunar blasa við um heim allan. Hitabylgjur, flóð, þurrkar og öfgakenndar sveiflur eru birtingarmyndin og valda neyð og hörmungum,“ skrifar Katrín á Facebook.

Um hundrað manns voru viðstödd kveðju­at­höfn­ina þar sem minn­ing­ar­skjöld­ur um Ok var af­hjúpaður.

Auglýsing

læk

Instagram