Eurovision-keppandi fannst látinn í bílnum sínum

Vlatko Ilievski, sem keppti fyrir hönd Makedóníu í Eurovision-söngvakeppninni árið 2011, fannst látinn í bílnum sínum í höfuðborginni Skopje í gærmorgun.

Lögregla rannsakar nú dánarorsök en hann var aðeins 33 ára. Þetta kemur fram í frétt EuroVisionary sem hefur þetta eftir makedónskum fjölmiðlum.

Ilievski var fulltrúi Makedóníu í Eurovision árið 2011 og flutti lagið „Rusinka“. Hann hafnaði í 16 sæti í seinni undanriðli keppninnar og komst því ekki á lokakvöld keppninnar.

Hann hafði áður tekið þátt í forkeppni Eurovision í heimalandi sínu árið 2010 þegar hann lenti í öðru sæti.

Flutningur Ilievski á sviðinu í Düsseldorf árið 2011

 

Auglýsing

læk

Instagram