today-is-a-good-day

Eyrún Magnúsdóttir ráðin framkvæmdastjóri Kjarnans

Fjölmiðlakonan Eyrún Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Kjarnans. Hún hefur nú þegar hafi störf en hún tekur við starfinu af Þórði Snæ Júlíussyni sem mun nú alfarið einbeita sér af ritstjórn miðilsins.

Á vef Kjarnans segir um Eyrúnu: „Eyrún hef­ur síð­ast­liðin tæp sjö ár haft um­sjón með og rit­stýrt Sunnu­dags­blaði Morg­un­blaðs­ins en starf­aði þar áður sem ráð­gjafi árum sam­an þar sem hún kom að ýmis kon­ar verk­efna­stjórn­un, mark­aðs- og út­gáfu­mál­um og stefnu­mót­un­ar­vinnu. Hún starf­aði einnig á RÚV á ár­un­um 2004 til 2006 og var meðal ann­ars einn þátta­stjórn­enda Kast­ljóss á því tíma­bili. Eyrún er með BA gráðu í í hag­fræði með sagn­fræði sem auka­grein. Þá hef­ur hún lokið meist­ara­námi í stjórn­un og stefnu­mót­un frá við­skipta­fræði­deild Há­skóla Íslands.“

Þórður Snær Júlíusson hefur gegnt starfinu frá byrjun ársins 2018 samhliða ritstjórastarfinu en mun nú einbeita sér alfarið af því.

 

Auglýsing

læk

Instagram